Samgöngur

Samgöngur til Vestfjarða hafa batnað mikið síðustu árin, með tilkomu Dýrafjarðargangna og malbikunar á suðurfjörðum Vestfjarða.  Á næstu 1-2 árum verður svo væntanlega búið að malbika langstærsta hluta leiðarinnar um suðurfirði í gegnum Teigsskóg og yfir Dynjandisheiði.  Það eru þó margir sem telja vegi svæðisins farartálma, en hingað kemst hvaða smábíll sem hingað vill.  Það eru að sjálfsögðu hlutar sem eru slæmir, en megnið af vegunum er í malbikaðir og í góðu standi. Með því að fara akandi gefst frábært tækifæri til að njóta umhverfisins og fjölda spennandi afþreyingarmöguleika á leiðinni. Hér eru fjórir mismunandi akstursmöguleikar frá Reykjavík. 

Keyrandi

  • Hringurinn + Baldur: Með Baldri yfir Breiðafjörð. Frá Reykjavík að Stykkishólmi, þaðan sem ferjan Baldur fer, eru 172 km. Siglingin yfir Breiðafjörð tekur um 2,5 klukkutíma og er möguleiki á að stoppa í Flatey á leiðinni. Ferjan leggur að á Brjánslæk og þaðan á Ísafjörð eru 122 km. Miða í ferjuna er hægt að panta á heimasíðu Sæferða
  • Hringurinn  um Dali: Keyrandi frá Reykjavik um Búðardal, í vesturátt um Flókalund og þaðan haldið í norður yfir Dynjandis-, Hrafnseyrar- og Gemlufallsheiði til Ísafjarðar eru 456 km. 118 km af þessari leið eru ómalbikaðir en vel þess virði að fara hana og njóta hrikalegrar náttúru á leiðinni og sjá hinn gífurlega fjallfoss Dynjanda. 
  • Djúpið: Algengasta leiðin, sem opnuð var árið 2009 um Þröskulda/Arnkötludal er 455 km, allt malbikað. Þá er ekið um Bröttubrekku, Búðardal, Þröskulda/Arnkötludal, Hólmavík, Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp.
  • Stysta leiðin í kílómetrum talið er yfir Þorskafjarðarheiði, 25 km, sem þó hefur ekki verið malbikuð. Þá er ekið um Bröttubrekku, Búðardal, Þorskafjarðarheiði, komið upp á Steingrímsfjarðarheiði og þaðan um Ísafjarðardjúp (440 km). Vinsamlega leitið upplýsinga um færðina á heiðinni á heimasíðu Vegagerðarinnar áður en haldið er á hana.
  • Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Vegagerðarinnar

 

Flug

Icelandair flýgur tvisvar á dag til Ísafjarðar. Með þessu móti gefst tækifæri til dagsferðar í höfuðstað Vestfjarðanna. Nánari upplýsingar og bókanir á heimasíðu Icelandair.

Norlandair flýgur einu sinni á dag, sex daga vikunnar, til Bíldudals og tvisvar í viku til Gjögurs. Nánari upplýsingar og bókanir á heimasíðu Norlandair.

 

Hjólandi

Að hjóla Vestur er einnig möguleiki. 

Hér er hægt að nálgast hjólakort fyrir hjólandi ferðalanga sem inniheldur allskyns nothæfar upplýsingar, m.a. um vegina. 


Allar frekari upplýsingar veitir vinalegt starfsfólk Upplýsingamiðstöðvarinnar á Ísafirði í síma 450 8060 eða í tölvupósti info@vestfirdir.is.